EGILL hefur lengst af starfað í sjónvarpi og kvikmyndum, en frá árinu 2017 hefur málverkið alfarið tekið yfir. Í apríl 2022 hélt hann stóra yfirlitssýningu helstu verka síðustu ára, syninguna ÓÐUR, þar sem myndefnið var að stærstum hluta manneskjan í öllum sínum fjölbreytileik.
ENN ÓÐUR (2023) rifjar upp þessa tíma og er í leiðinni beint framhald þeirrar sýningar. Og þrátt fyrir að myndefnið sé áfram mannfólk (og meira til) er það ekki síður gleðin við að mála, sem einkennir verkin, en hér erum að ræða olíuverk á striga í bland við pappírsklipp.







































